Spiladagur í dag

Vinningshafar í félagsvist
Í dag var spiladagur í skólanum. Nemendur í 1., 2., 3. og 4. bekk komu með hin ýmsu spil með sér í skólann en nemendur í 5., 6. og 7. bekk spiluðu félagsvist. Að lokinni spilamennsku var verðlaunaafhending. Í fyrsta sæti í bleika liðinu var Eva í 7. bekk, Sóley í 5. bekk lenti í öðru sæti og Elísa í þriðja sæti. Í bláa liðinu var Samúel í 5. bekk í fyrsta sæti, Iðunn í 6. bekk var í öðru sæti og Michal í 7. bekk í því þriðja. Vinningshafar fengu gjafabréf frá skólanum í Ísbúð Huppu.