Stoðþjónusta

Stefna Reykjavíkurborgar um sérkennslu og stuðning hefur skóla án aðgreiningar að megin leiðarljósi. Í því felst að skólinn veiti öllum nemendum sínum þjónustu fötluðum jafnt sem ófötluðum. Kennaranum er ætlað að aðlaga kennslu sína að nemendahópnum og þarf því að beita mismunandi kennsluaðferðum og vera með mismunandi viðfangsefni fyrir nemendur sína.
Heilsugæsla
Skólaheilsugæsla sinnir skipulagðri heilbrigðisfræðslu og hvetur til heilbrigðra lífshátta.
Námsráðgjöf
Námsráðgjafi veitir nemendum persónulegan og félagslegan stuðning í námi.
Menntun fyrir alla
Í grunnskólum Reykjavíkur er sérhverju barni mætt í námi óháð atgervi þess og stöðu.
Stuðningsþjónusta í Húsaskóla
Nám er skipulagt til lengri tíma með nemendum sem eru í sérkennslu og eru fundir með foreldrum, deildarstjóra sérkennslu, skólastjóra og umsjónarkennara. Í framhaldi af því er unnin einstaklingsnámskrá. Umsjónarkennari og sérkennari annast þá vinnu í samvinnu við foreldra.
Meginstefnan er að kennslan fari fram í skóla barnsins. Telji foreldrar eða forráðamenn barns, kennarar eða aðrir sérfræðingar að barnið fái ekki notið kennslu við sitt hæfi í þeim skóla geta foreldrar eða forráðamenn sótt um kennslu fyrir nemanda í öðrum skóla, sérskólum, sérhæfðum sérdeildum eða leitað annarra úrræða. Mikilvægt er að finna sem fyrst þau börn sem þurfa sérkennslu svo markviss kennsla geti hafist. Fimm stuðningsfulltrúar starfa við skólann.
Deildarstjóri stuðningsþjónustu er Kristín Ármannsdóttir
Farsæld barna
Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum.
Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana.
Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.
Tengiliður Húsaskóla er:
Uppeldi til ábyrgðar
Húsaskóli nýtir uppeldisstefnuna Uppeldi til ábyrgðar- uppbygging sjálfsaga í sínu starfi. Megin stef stefnunnar snýst um að kenna börnum og unglingum sjálfsaga og ýta undir sjálfstraust. Í skólanum er einnig unnið markvisst að því að fyrirbyggja einelti og annað andfélagslegt atferli.