Barnsáttmáli Sameinuðu þjóðanna.

Barnasáttmálinn

Í liðinni viku var unnið í öllum skólanum með Barnsáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Unnið var út frá mismunandi greinum sáttmálans.  Sem dæmi var unnið með gr.  3 og 7 en í þeim er farið yfir það sem barninu er fyrir bestu, nafn og ríkisfang. Nemendur skrifuðu nafnið sitt og merkingu þess á nafnspjald ásamt því að lita fána upprunalands þeirra. Einnig var unnið út frá greinum 6 og 23 og afraksturinn var armband gert úr lífsþráðum. Blái liturinn táknar öryggi - heimili og fjölskyldu, rauði liturinn táknar heilsu- næringarríkan mat og aðgang að læknisþjónustu, appelsínuguli liturinn táknar gleði, leiki og vini. Hvíti þráðurinn er svo til þess að minna okkur á að við erum öll ólík og þurfum á mismunandi stuðning að halda í gegnum lífið.