Myndmenntakennsla

Fiskur2

Í myndmenntavali er verið að vinna með allskyns þrykk.

Myndmenntakennarinn Ingibjörg, hafði samband við eigandann hjá Öldunni (fiskbúðin í Spönginni) og hann úrvegaði  heila fiska (ekki flakaða) til að vinna með.
Ingibjörg sýndi nemendum hvernig hægt er að gera þrykk með náttúrulegum "hlut" með því að þekja hann í prentlit þar sem þess er gætt að hafa litinn í jöfnu þunnu lagi. Hluturinn (í þessu tilfelli fiskur- en unnið hefur verið með aðra hluti s.s. strá, laufblöð o.fl.) er síðan þrykktur/prentaður á mjúkan pappír.
Ekki voru allir tilbúnir til að prófa að þrykkja sjálfir en fylgdust þó með og lærðu handtökin og ferlið við þetta.