Grænu skrefin

græn skref

Skólinn okkar er Grænfánaskóli.

Í vikunni fengum við heimsókn frá Landvernd. Hlutverk þeirra er að leiða skóla í faglegri og árangursríkri vinnu með sjálfbærni í víðum skilningi að leiðarljósi. Í dag eru 54.749 skólar í 82 löndum sem taka þátt í verkefninu. Á Íslandi eru um 170 Grænfánaskólar. Húsaskóli hefur fengið Grænfánann sex sinnum. Föstudaginn 13. mars fékk skólinn viðurkenningu frá Reykjavíkurborg fyrir tekin skref í rekstri.