Nemendaráð

Markmið nemandaráðs Húsaskóla er að vinna að hagsmuna- og velferðarmálum nemenda. Ráðið kemur meðal annars að jafnréttismálum, matarmálum,  húsnæði og öðru sem viðkemur málefnum nemenda skólans. Það er skipað sjö nemendum úr öllum árgöngum og sitja tveir af þeim í skólaráði skólans. Nemendaráð fundar reglulega. 

Ábendingar frá nemendum velkomnar

Nemendur Húsaskóla sem eru með ábendingar um það sem má betur fara eða það sem þau eruð ánægð með geta komið þeim á framfæri í hugmyndakassa sem staðsettur er fyrir framan skrifstofu skólans. Nemendaráðið fer yfir allar hugmyndir og ábendingar reglulega sem berast og kemur þeim í réttan farveg. 

Teikning af Fjólu með vinkonu í frístund

Nemendaráð Húsaskóla

  • Ráðið heitir Nemendaráð Húsaskóla.

  • Markmið nemendaráðsins er að vinna að hagsmuna- og velferðarmálum nemenda.

  • Í ráðinu skulu sitja a.m.k. átta fulltrúar. Einn til tveir úr hverjum árgangi.

  • Val á fulltrúum í ráðið fer þannig fram að umsjónarkennarar kynna ráðið fyrir öllum nemendum á haustin. Áhugasamir nemendur bjóða sig fram við þá og boðað er til kosninga innan hvers árgangs.

  • Ráðið kemur saman til fundar einu sinni fyrir áramót og einu sinni eftir áramót.

  • Þess er vænst að nemendaráðsfulltrúar séu fyrirmyndir annarra nemenda og séu tilbúnir að vinna í þágu þeirra.

  • Nemendaráðsfulltrúar bera upp mál til umfjöllunar á fundum ráðsins.

  • Nemendaráðsfulltrúar bregðast við öllum málum sem borin eru upp.

  • Nemendaráðsfulltrúar skiptast á að stjórna fundunum.

  • Einn ritari er ráðinn og ritar fundargerðir.

  • Verði nemendaráðsfulltrúar uppvísir af ósæmilegri hegðun á fundum eða utan þeirra geta þeir misst rétt til setu í nemendaráði.